Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Skilaboð dauðans

Kennari er aldrei í sumarfríi!!

Könnun

Áttu Portugalar skilið að detta út gegn Frökkum?

Með-limir með heimasíðu

Leikur dagsins

Leit

Gagnasafn

Þá er komið að enn einum Survour

28. júlí 2006 klukkan 04:49
Nú líður að hittingi sem að þessu sinni verður á Akureyri. Fyrsti hittingurinn var á Egilsstöðum 2001 árið eftir var á Kirkjubæjaklaustri. 2003 var hittingurinn á Hellu,2004 var hist í Mosfellsbæ og í fyrra útilega á Hvolsvelli. En aftur að árinu í ár. Það er eins og við vitum alltaf skipts á að skipuleggja þessar ferðir og í ár eru það Freyr (ég) og Viðar J. Ákveðið hefur verið að hittast á Akureyri á föstudeginum eða um kvöldið. Ég persónulega legg af stað um 16 og ætla Raggi og Berglind að vera samferða. Laugardagurinn verður skipulagður í kringum golfið en áætlað er að byrja golfið um 10-11 leitið og tekið verður 9 holur. Á meðan fara konur og börn og nýta sér dagskrá sem verður í kringum "Ein með öllu" á Akureyri. Talað er um að tjalda í Tjarnaskógi sem er einhverstaðar þarna á svæðinu. (Sá sem mætir fyrstur á svæðið er ábyrgur fyrir því að finna góðan og barnvænan stað fyrir gistingu.) Eftir golfið sem verður svona um 15 fara allir saman í sund. Eftir það er farið að huga að matnum og er ætlast að menn/fjölskyldur komi með skemmtiatriði strax á eftir matnum og sjálfsögðu verða veit verðlaun fyrir golfmótið.  Veitt verða verðlaun fyrir eftirfarandi:
Golfari ársins
Ekki golfari ársins (2.sætið)
Flest högg á holu
Best klæddi golfarinn
Högg ársins
ásamt einhverju fleirra sem ekki verður talið upp hér. 
Sunnudagurinn verður óskipulagður en það eru hugmyndir um að færa sig um set og tjalda í Ásbyrgi en Sigurrós er að spila þar og eru þónokkrir TV-ingar sem hafa áhuga á að sjá þá.

A.t.h. muna eftir spilum og öddi muna eftir trékubbunum. Og svo má alls ekki gleyma golfsettinu og einnig reyna muna eftir að taka hina í fjölskyldunni með. 

Kv. Skipóleggjó FB og VJ 
Traustur Vinur
3 athugasemdir

Senn líður að TV-2006

22. júlí 2006 klukkan 00:03
Já senn líður að TV-hittingi á Akureyri. Stefnt verður á að gista í Tjarnaskógi sem er þarna mjög nálægt Akureyri. Búast skipuleggjendur við komu flestra TV-inga en það er ljóst að Friðrik mætir ekki þar sem hann er erlendis. Aðrir mæta með fjölskyldur sínar. Dagskráinn verður líklega bara niðurnegld á laugardeginu, en  hinir dagarnir verða nokkuð frjálsir.

Annars verður spennandi að sjá menn eins og viðar sem hefur ekki keppt í TV-Classic í mörg ár og heyrst hefur að hann sé komin með 15 í forgjöf og ætti því að rúlla þessu móti upp. Eins hefur maður heyrt að Flóki sé byrjaður að dusta rykið af settinu hans Frikka og ætli að verða wildcardið í ár. Annars er Arnar komin í kennslu og hefur tekið framförum og gæti toppað um Verslunarmannahelgina. Annars veit maður ekki um hvernig Einar kemur undan vetri. Raggi gæti tekið þetta á puttunum og Öddi gæti komið sterkur inn og sleppt því að taka 10 högg á par 3 holum. Annars hlýtur Freyr að vera nokkuð sigurstranglegur enda hefur hann unnið 3 ár í röð en þetta verður án efa mót sem kemst í sögubækurnar og ekkert annað en tilhlökkun í mönnum.

Kv. The Winner
Traustur Vinur
Engin athugasemd

Golfhittingur í svaða veðri

20. júlí 2006 klukkan 03:23
Nú voru það 4 TV-ingar sem hittust á Akranesi í spánar veðri og fóru í golf saman á Þóristaðavelli í Hvalfirðinum. Þetta voru Freyr, Arnar, Ragnar og Öddi. Reyndar var Arnar með Caddý, dóttir sína. Ákveðið var að spilað yrði liðakeppni og einstaklingskeppni. Það voru Ragnar og Öddi sem voru eitt lið og Freyr og Arnar hitt liðið. Það er skemmst frá því að segja að eftir 9 holur var jafnt í liðakeppni en að sjálfsögðu vann Freyr einstaklings keppnina eins og í allt sumar. Freyr fór á 53 höggum, Ragnar og Öddi á 55 höggum og Arnar á 56 höggum. Ákveðið var að spilaður yrði bráðabani til að fá sigurvegara í liðakeppninni. Samþykkt  var að fara í tjipp keppni og þar rétt mörðu raggi og öddi sigur. Vill ég óska þeim til hamingju með þann árangur. 

Myndir koma fljótlega af þessu móti.  
Traustur Vinur
2 athugasemdir

Golfhittingur + HM leikur

06. júlí 2006 klukkan 03:42
Freyr, Arnar og Ragnar toku sig saman og foru i golf i dag. Farið var a Oddfello æfingarvöllinn og tekin var holukeppni. Eftir 9 holur var Ragnar með forustu en við akvaðum að taka 6 holur i viðbot og það var svo Freyr sem sigraði með 5 holum, Ragnar vann 4 holur og Arnar vann 2 holur.
Eftir þetta forum við svo heim til Arnars sem er með klassa aðstöðu til HM horfa. Hann er með skjavarpa sem hann varpar a vegginn. Við horfðum a Frakka sigra helv... Portugalana 1-0, jibiiii.

Freyr er þa með tvö gull, Ragnar með tvö sifur og Arnar með 2 brons.


Pokerhittingur fljotlega - reynum að akveða dagsetningu i sameiningu.

KV. Formaður F
Traustur Vinur
Engin athugasemd

Hittingur heima hjá Ragga snilla á Nesinu!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!

14. júní 2006 klukkan 16:02

Jæja vinir.

Þá er komið að því að mæta til Ragga á föstudaginn í golf og svo póker seinna um kvöldið.  Pókerinn byrjar kl: 20.00.
Staðfestið hér í athugasemd að þið komið og let's make a day of It, shall we.

Sé ykkur.
Raggi.

Traustur Vinur
2 athugasemdir

HM í knattspyrnu

07. júní 2006 klukkan 23:21
Sælir drengir, nú fer HM að byrja og ekki seinna vænna að spá hvernig fer. Ég er búin að flokka þetta niður og er með öll úrslit á hreinu. Ég spái Tékklandi sigri eftir hörkuleik við Brasilíu. Annars sjáið þið betur hvernig þetta ræðst á heimasíðunni minni. www.freyrbrynjars.bloggar.is

Nú vil ég sjá komment um hverja þið teljið vera sigurstranglegasta.
(Skoðið fyrst heimasíðuna mína áður en þið ákveðið ykkur)

Kv. Formaður F ( a.k.a. spekingurinn)

Traustur Vinur
1 athugasemd

Fyrsti golfhittingur sumarsins

04. júní 2006 klukkan 22:54
Í dag hittust helmingur af TV á Setbergsvellinum í Garðabæ. Þeir sem mættu voru Freyr, Ragnar, Arnar og Friðrik. Ekki byrjaði þetta vel, en einn datt út á fyrstu holu og það var vegna bakverkja. Friðrik þurfti því kveðja okkur og var hans sárt saknaðGráta.  Eftir fyrstu 9 holurnar var staðan þannig: Arnar með 76 högg og ákvað hann því að leggja kylfurnar á hilluna og sagði bless. (þurfti að fara í einhverja útilegu). Ragnar var með 54 högg og Freyr 49 högg. Freyr og Ragnar ákváðu að halda áfram þó svo að þeir hefðu bara borgað fyrir 9 holur Saklaus. Á seinni 9 gaf Freyr ekkert eftir og hafði sigur í heildina 102 högg gegn 108 höggum Ragnars.

Þetta var fyrsti hittingur í sumar og eiga þeir eftir að vera fleiri. Það er mikilvægt að ef einhverjir af TV hittast í golf að þeir komi með úrslit á heimasíðuna.
Freyr er komin með eitt gull.
Ragnar eitt silfur.
Arnar eitt brons.

P.s. það er ekki hægt að fara einn í golf og koma með einhverja svaka sögu. Verða alltaf að vera allavegna tveir úr TV.

Kveðja Formaðurinn
Traustur Vinur
Engin athugasemd

Hugmynd

04. júní 2006 klukkan 03:34
Rakst á þetta þegar ég var að skoða mbl.is. www.myrarbolti.com spurning hvort við skellum okkur ekki á þetta eitthvert árið. Snilldar fótbolti.

Annars eru menn lélegir að kíkja þessa síðu. Arnar það virkaði ekki að setja myndina inn. Sendu mér hana og ég skal klára þetta mál fyrir þig.
Traustur Vinur
Engin athugasemd

Afmæli að baki

24. maí 2006 klukkan 14:09
Sælir drengir!
Afmæli dauðans að baki og vil ég þakka þeim TRAUSTU vinum sem MÆTTU fyrir gríðarlegan hlýhug í minn garð.  Þeir sem EKKI mættu verða bara að eiga það við sjálfa sig........Ullandi

Afmælið var annars mjög skemmtilegt, enda margt góðra vina og ættingja, nú og pönkara.  Sýnt var gríðarlangt og flott myndband, þar sem m.a. Pétur Jóhann lét gamm geysa og Ásgrímur Ingi fór á kostum.  Í kjölfarið tók svo Panil til sinna ráða og fór fyrir hópsöng.  Inn á milli leyndust svo gamlir partíslagarar úr safni Ödda sjálfs.  Flestir fóru ánægðir og vel við skál heim á leið, (nema Viddi sem var mjög þunnur daginn eftir)

Hilsen,

Öddi
Traustur Vinur
1 athugasemd

Eru menn ekkert farnir að kíkja hér inn???

19. maí 2006 klukkan 13:48
Hvernig er það með Trausta vini?  Eru menn ekki enn farnir að kíkja hér inn?  Menn sýna allavega engin viðbrögð við því sem er skrifað.  Allavega, ég vona að ég sjái ykkur alla á laugardaginn.  Það hefur enginn boðað forföll ennþá þannig að allir hljóta að mæta í góðu stuði.

Öddi
Traustur Vinur
3 athugasemdir